Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg.fasteignasali, Kristín Rós lögg. fasteignasali og Þórunn Páls lgf kynna Grensásvegur 1F, nýbygging. Eign á 4.hæð, stærð 90,6 fm, í 108 Reykjavík. Glæsileg 3ja herbergja íbúð með fallega innréttuðu alrými, eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og gengið út á suð-vestur svalir úr stofu, sem snýr að inngarði. Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum. Hjónaherbergið er einnig með gólfsíðum gluggum, það er mjög rúmgott og með góðum skápum. Barnaherbergið er bjart, einnig með gólfsíðum gluggum og góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt að hluta, með sturtu sem gengið er beint inní, óbein lýsing fyrir ofan sturtu, skúffu innrétting undir handlaug og spegill fyrir ofan handlaug einnig með óbeinni lýsingu. Sér þvottahús innan íbúðar með góðri vinnuaðstöðu með skolvaski. Eigninni fylgir geymsla í kjallara að stærð 6,6 fm. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.
Nýr valkostur í fjármögnun fasteignaBRÚ 20%. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% -25% af kaupverði sjá http://FasteignaBRU.isHúsið G1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum samtals 181 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1F eru 33. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum með 183 stæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. En um helgar er kr 120- á klukkustund.
Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Um er að ræða glæsilega íbúð með útsýni, gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Deilibílar. Deilibílar í boði fyrir húsið, bæði sendibílar og fólksbílar. Einnig ON hrað-hleðlsustöðvar
Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman.
Snjóbræðsla undir helstu göngustígum.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða tölvupóstur kristin@haborg.is og Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.isAthugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.