Fasteignaleitin
Opið hús 27. jan. kl 12:00-12:30
Skráð 22. jan. 2026
Deila eign
Deila

Þórðarsveigur 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
91.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
784.079 kr./m2
Fasteignamat
67.850.000 kr.
Brunabótamat
52.780.000 kr.
Byggt 2004
Garður
Fasteignanúmer
2265832
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Yfirfarnir
Þak
Ekki vitað
Svalir
Nei
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu ÞÓRÐARSVEIG 15, 113 Reykjavík.

Vel skipulögð, þriggja herbergja íbúð á fyrstu/jarðhæð með sérgeymslu og stæði í bílageymslu í Grafarholti. Stutt að fara í grunn- og leikskóla, almenna þjónustu og fallegar gönguleiðir. Smellið hér fyrir staðsetningu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR, HÉR.

Þórðarsveigur 15, íbúð á hæð og stæði í bílageymslu, samtals 91,7m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag íbúðar: anddyri, gangur/hol, alrými með eldhúsi og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Í sameign: stæði í bílageymslu, sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.

Anddyri er opið inn á gang/hol sem leiðir að öðrum rýmum íbúðarinnar. Flísar á gólfi og þrefaldur fataskápur.

Alrými með stofu og eldhúsi. Stofa er opin og björt með glugga í suðaustur. Útgengt út á rúmgóðan pall með skjólvegg og hlið út í sameiginlegan garð.

Eldhús, hvít L-laga innrétting með efri skápum að hluta, stálvaskur, vifta, spanhelluborð og ofn. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Innrétting er sprautuð hvít með hvítri borðplötu með marmaraútliti.

Herbergi I, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi II, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, baðkar, vaskinnrétting, handklæðaofn og lofttúða.

Þvottahús, stálvaskur, lofttúða, ljósleiðara- og rafmagnsinntak.

Gólfefni: Flísar á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Quick-step harðparket á hol/gangi, herbergjum, stofu og eldhúsi. Quick-step er svansvottað og öflugt harðparket með vatnsheld samskeyti og mattri áferð sem skilar sér í náttúrulegri áferð.

Framkvæmdir síðustu ár:

2024: byggður pallur og skjólveggur.

2022: skipt um gólfefni í anddyri, gang/holi, herbergjum, eldhúsi og stofu.

2022: Innihurðar og eldhúsinnrétting sprautuð.

Þórðarsveigur 11-15 er 26 íbúða fjölbýlishús, auk bílageymslu í kjallara. Í húsi númer 15 eru þrjár hæðir. Aðal-burðarvirki byggingarinnar er úr járnbentri steinsteypu, þ.e. sökklar, botnplata, útveggir, milliplötur. Þakvirki er steypt plata, einangruð ofan frá og er ysta klæðning þaks PVC-dúkur. Í kjallara er bílageymsla fyrir 24 bíla, inntaksklefar veitna, auk 10 sérgeymslna. Innangengt er úr kjallara í stigaganga hússins. Á 1. hæð eru auk íbúða aðalinngangar, hjóla- og vagnageymslur auk sorpgeymsla.

Samkvæmt eignaskiptasamningi:

“Íbúð 0105: 83,6m² og geymsla 0009: 8,1m². Eignin er þriggja herbergja íbúð á 1. hæð í húsi nr. 15. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara merkt 0009. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign sumra (Y1), bílastæði merkt B-1. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign sumra (Y4) og (Y6), sjá nánar í kaflanum um sameign sumra hér að aftan. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra (X), sjá nánar í kaflanum um sameign allra hér að aftan. Eigninni tilheyrir sérafnotaflötur framan við hurð út í garð. Sjá nánar á teikningu A-03 af grunnmynd 1. hæðar…”

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Símsvörun alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/03/202244.450.000 kr.56.900.000 kr.91.7 m2620.501 kr.
21/03/201320.800.000 kr.22.500.000 kr.91.7 m2245.365 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Friggjarbrunnur 53
Bílastæði
Friggjarbrunnur 53
113 Reykjavík
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
744 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Andrésbrunnur 3 SELD
Bílastæði
Andrésbrunnur 3 SELD
113 Reykjavík
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
750 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Andrésbrunnur 15
Bílastæði
Andrésbrunnur 15
113 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
779 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Öldugrandi 3
 29. jan. kl 17:30-18:00
Öldugrandi 3 nýtt.png
Skoða eignina Öldugrandi 3
Öldugrandi 3
107 Reykjavík
105.1 m2
Fjölbýlishús
31
713 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache