Fallegt og bjart 5 herbergja einbýlishús með stórum palli og heitum potti í Hveragerði.- Róleg og eftirsótt staðsetning í fjölskylduvænu hverfi
- 5 herbergja einbýlishús
- Stór trépallur með heitum potti
- Bílskýli og vinnustofa/geymsluskúr
Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is eða
Andrea Ósk Harradóttir - aðstoðarmaður fasteignasala í síma 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar er 146,6 m² samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, vinnustofu/geymsluskúr og bílskýli.
Forstofa - Forstofa er flísalögð.
Forstofuherbergi - Rúmgott og bjart forstofuherbergi með parketi á gólfi.
Hol / gangur - Rúmgottt hol/gangur, flísalagt, með fataskáp og aðgengi að baðherbergi og svefnherbergjum.
Baðherbergi - Flísalagt baðherbergi með handlaug, salerni, handklæðaofni á vegg og sturtuaðstöðu í baðkari. Baðherbergi var endurnýjað 2020. Gluggi endurnýjaður ásamt lögnum undir baðkari. Flísar teknar af veggjum, timbur og einangrun endurnýjuð og settar voru Fibo plötur ásamt nýjum blöndunartækjum. Vínilparket lagt á gólf.
Svefnherbergi - Við ganginn eru þrjú svefnherbergi. Öll björt og rúmgóð en hjónaherbergið er stærst og með fataskáp.
Eldhús - Eldhús með IKEA-innréttingu, eldavél og flísum á milli skápa og á gólfi. Úr eldhúsi er gengt í búr/þvottahús og dýr út þaðan.
Stofa / borðstofa - Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á stóran pall.
Að utan - Húsið er klætt standandi viðarklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr tré og járn er á þaki. Við annan enda hússins er vinnustofa/geymsluskúr og bílskýli í framhaldi af því.
Pallur - Pallur sunnan við húsið með skjólveggjum.
Garður - Garður með töluverðum trjágróðri. Innkeyrsla er malbikuð. Í garðinum er einnig lítið skýli og aðstaða sem eigendur hafa nýtt fyrir hænur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.