Fasteignaleitin
Skráð 16. jan. 2026
Deila eign
Deila

Sörlaskjól 64

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
115.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
831.743 kr./m2
Fasteignamat
91.450.000 kr.
Brunabótamat
51.900.000 kr.
Byggt 1949
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2026632
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta sjá ástandsyfirlýsingu seljanda
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar - sjá ástandsyfirlýsingu seljanda
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - sjá ástandsyfirlýsingu seljanda
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1.
Upphitun
Hitaveita - sameiginleg
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Gluggaskipti á stofuglugga á 3.hæð, viðgerð á lofti í stofu á litlum fleti á 1.hæð eftir leka.
Ósamþykktar og væntanlegar: Gluggaskipti á 1. og 2. hæð á næstu 3 árum. Sameiginlegar viðgerðir á þaki með Sörlaskjóli 62 sumar 2026.
Kvöð / kvaðir
441-C-001308/2022 - Almenn kvöð um hvers konar lagnir og jarðstrengi Veitna ohf. sem þörf er á legu þeirra, og gröft á lóðinni. Kvöð um fjölda bílastæða, þ.e. fjöldi og frágangur þeirra og aðkoma sé í samræmi við gildandi deiliskipulag. Ef ekki er til deiliskipulag skal styðjast við gilt mæliblað.
411-S-003162/2004 - Lóðarhafar að Sörlaskjóli 64 gera ekki athugasemdir við að gróðurskáli á lóð nr. 70 standi á lóðarmörkum enda skuli lóðareigandi fjarlægja hann með 6 mánað fyrirvara takmarki hann á einhvern hátt byggingarmöguleika .
Afar falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi með bílskúr sem breytt hefur verið í fallega stúdíóíbúð. Eignin er á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur með sérlega fallegu sjávarútsýni úr stofu ásamt útsýni úr eldhúsi yfir Esjuna.

** 2 svefnherbergi
** Bílskúr hefur verið breytt í stúdíóíbúð
** Glæsilegt útsýni
** Frábær staðsetning


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 115,3m2, þar af bílskúr 32m2.

Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi og bílskúr sem búið er að breyta í stúdíóíbúð.

Nánari lýsing: 
Stigapallur er með fatahengi. Teppi á gólfi.
Hol tengir saman öll rými íbúðar. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með góðum gluggum. Magnað útsýni út á haf, Bessastaði, Reykjanesið og Keili. Útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað með hvítri innréttingu, bakaraofni, helluborði.  Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. Glæsilegt útsýni út á Esjuna úr eldhúsinu. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með góðri hvítri innréttingu, upphengdu klósetti, baðkari og handklæðaofni ásamt vatnsheldri klæðningu. Flot á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp og útbúið hefur verið lítið fataherbergi. Fallegt sjávarútsýni. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Bílskúr/stúdíóíbúð 32m2 var uppgerður sem stúdíóíbúð árið 2019. Björt og góð stúdíóíbúð með 4 stórum gluggum sem snúa út í garð. Opið alrými með eldhúsi, stofurými og svefnaðstöðu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu með sturtugleri, upphengdu klósetti, handklæðaofn ásamt baðinnréttingu með skápum, vask og spegli með innfelldri lýsingu. 
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús.

Innra skipulagi hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. 

Sörlaskjól 64, íbúð merkt 0201, er sérlega falleg og vel skipulögð útsýnisíbúð á vinsælum stað við sjávarsíðuna í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt er í skóla á öllum stigum, þjónustu og verslun ásamt fallegum göngu- og hjólaleiðum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/11/202154.750.000 kr.74.500.000 kr.115.3 m2646.140 kr.
22/08/201848.500.000 kr.52.500.000 kr.115.3 m2455.333 kr.
19/03/201534.700.000 kr.33.250.000 kr.115.3 m2288.378 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Byggt 1990
32 m2
Fasteignanúmer
2026632
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandavegur 47
Bílskúr
Skoða eignina Grandavegur 47
Grandavegur 47
107 Reykjavík
144.9 m2
Fjölbýlishús
312
655 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Dunhagi 18
Skoða eignina Dunhagi 18
Dunhagi 18
107 Reykjavík
84.1 m2
Fjölbýlishús
211
1128 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Kaplaskjólsvegur 93
Kaplaskjólsvegur 93
107 Reykjavík
116.7 m2
Fjölbýlishús
413
856 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Neðstaleiti 5
Bílastæði
 27. jan. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Neðstaleiti 5
Neðstaleiti 5
103 Reykjavík
107.2 m2
Fjölbýlishús
312
885 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache